SIP

Símkerfi

Almennt

IP Símkerfi SIP er öflugt og sveigjanlegt Asterisk IP símkerfi (IP-PBX) sem hentar stórum og smáum fyrirtækjum. Fjölga má notendum kerfisins umtalsvert án sérstaks auka kostnaðar. Auðvelt er að bæta við notendum og með Aastra símtækjum er ekki þörf á að fá tæknimann á staðinn til að stilla ný símtæki, skipta út gömlum eða færa þau til innan fyrirtækisins. Með Aastra símtækjum er símaskráin miðlæg og símtækin uppfærast sjálfvirkt en auk þess getur hver og einn notandi bætt við númerum í sína eigin símaskrá. SIP getur auk þess útfært samtengingu símstöðvarinnar við miðlæga notendagrunna fyrirtækisins, t.d. LDAP.

Kostnaður

Þar sem Asterisk er frjáls hugbúnaður eru engin leyfisgjöld á hugbúnaðnum. Kostnaðurinn við símkerfið er því einungis kostnaður á tölvubúnaði, símtækjum og uppsetningu af okkar hálfu.

Kostnaðurinn við tölvubúnaðinn ef keypt er Shuttle vél frá SIP er kr. 68.720,- með virðisaukaskatti. Um er að ræða Shuttle K48 XPC með Intel LGA755 Core2 Duo E5200, 1 GB Corsair DDR2 667MHz CL5 RAM og tvo speglaða 160 GB harða diska.

Uppsetningarkostnaður getur verið afar mismunandi eftir þörfum fyrirtækisins. Fyrir flest minni fyrirtæki og fyrirtæki sem eru ekki með sérþarfir er hann þó nokkuð fyrirsjáanlegur. Í grunninn er miðað við að uppsetning á einföldu kerfi taki samtals 8 tíma af vinnu. Þar af séu 4 tímar í uppsetningu á tölvuna á kr. 16.943,- per klst og 4 tímar í uppsetningu og kennslu á kr. 8.471,- per klst. Heildarkostnaður við uppsetningu er kr. 101.656,- með virðisaukaskatti.

Komir þú í símaþjónustu til SIP er gefinn 50% afsláttur af uppsetningu, og yrði því kostnaður með virðisauka fyrir tölvubúnað og uppsett símkerfi samtals 119.548,- í stað 170.376,-.

Í öllum tilfellum er bókaður fundur þar sem fer fram þarfagreining og í kjölfarið svo gefið nákvæmt tilboð í þá tegund uppsetningu sem þörf er á.

Valmynd og biðraðir

Hægt er að setja upp valmyndir og biðraðir (t.d. "veldu 1 fyrir sölufulltrúa") og raða starfsfólki í svörun á eina eða fleiri biðröð. Hægt er að hafa símtæki starfsmanna fastsett á tiltekna biðröð og hafa sérstakan innskráningartakka á símtækinu þannig að starfsfólk geti skráð sig inn á einstakar biðraðir.

Hópar og "hunting"

Hægt er að setja upp hringitóna þar sem ákveðin símtæki hringja samtímis eða koll af kolli, eða hvort tveggja. Einnig er hægt að láta hringingar berast eftir ákveðinni röð milli starfsmanna og enda t.d. í símsvara, talhólfi eða farsíma.

Gefa samband

Mjög auðvelt er að gefa samband við aðra starfsmenn fyrirtækisins. Hægt er að gefa strax samband eða tala fyrst við þann sem gefa skal samband við. Sé gefið samband án þess að tala við starfsmanninn fyrst og svo reynist hann ekki vera við eða getur ekki tekið símann, þá kemur símtalið aftur til baka á þann sem gaf samband, sérstaklega merkt svo auðvelt sé að átta sig á því að þetta sé símtalið komið aftur til baka.

Fundarsími

Hægt er að hafa eitt eða fleiri "fundarherbergi" (t.d. eitt fyrir hvern starfsmann), sem hvert og eitt er varið með lykilorði. Til þess að nota fundarsímann er fundarmönnum sent símanúmer "fundarherbergisins", lykilorð og tímasetning. Fundarmenn hringja þá inn og slá inn lykilorðið til að taka þátt í fundinum. Fundarsíminn getur sparað fyrirtækjum símakostnað því með því að bjóða upp á hann er hringt meira í fyrirtækið en út.

Símsvari

Hægt er að setja upp símsvara sem svarar við tiltekin skilyrði, hvort sem er fyrir einstaka starfsmenn, tiltekna hópa eða allt fyrirtækið. Tengja má símsvarann við dagatal, t.d. með helgidögum og sérsniðnum frídögum eða fyrirvaralitlum lokunum (t.d. jarðarfarir eða árshátíðir).

Stimpilklukka

Einföld stimpilklukka þar sem starfsfólk hringir í tiltekið númer til að skrá sig til og úr vinnu. Hægt er að takmarka skráningu við tiltekin símanúmer. Yfirlit yfir skráningar er aðgengilegt á vefslóð þar sem einnig má taka út gögnin á CSV skráarsniði. SIP ehf getur þróað frekari útfærslur á stimpilklukkunni eftir þörfum hvers og eins.

Tölfræði

Hægt er að skoða ítarlega tölfræði yfir innhringingar og símanotkun.

Búnaður fyrir símkerfið

Boðið er upp á tvennskonar tölvubúnað fyrir Símkerfi SIP. Annars vegar fyrirferðarlítið tölvubox ("Shuttle") sem passar á hillu eða hengja má á vegg og hinsvegar "rack-mount" tölvu fyrir tækjaskápa.

Tölvuboxin ganga fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á meðan "rack-mount" tölvan hentar frá meðalstórum og upp í stórfyrirtæki. Enginn skjár eða lyklaborð er við tölvubúnaðinn, heldur er honum stýrt í gegnum vefkerfi. Auðvelt er að samtengja útibú fyrirtækja þannig að um eitt símkerfi sé að ræða. Símkerfi SIP keyra á Linux stýrikerfinu.

Símtæki

SIP ehf hefur sérstaklega þróað símtæki frá Aastra fyrir Símkerfi SIP. Aastra er leiðandi í framleiðslu IP símtækja og leggur metnað sinn í vandaðan búnað, fallegt útlit, einfalt viðmót, mikið notkunargildi og síðast en ekki síst einstaka aðlögunarmöguleika. SIP hefur nýtt sér þessa eiginleika til að skapa einstakt símkerfi fyrir íslensk fyrirtæki.

Aastra símar

Aastra síminn er ríkulega búinn eftirtöldum eiginleikum:
  • Einstaklega notendavænn með íslensku viðmóti
  • Stór baklýstur LCD skjár (144x128 punkta) með XML vafra
  • 4 símalínur sem nýta má með samtímis (hver með sinn eigin hnapp og ljós)
  • Möguleiki á 3ja manna hópsímtali
  • Öflugur hátalari og 5 mismunandi hringingar með stillanlegum hljóðstyrk
  • Innbyggður stuðningur við höfuðtól (auðvelt að skipta milli símtóls, höfuðtóls og hátalara)
  • 20 forritanlegir hnappar fyrir sérsniðnar aðgerðir
  • Innbyggð símaskrá með leitarmöguleika sem uppfærist sjálfkrafa, en má einnig sérsníða
  • Birtir nafn þess sem hringir úr innanhús símtækjum og þeirra sem eru skráðir í símaskránna
  • 100 númera innhringi- og endurvalslisti (með dagsetningu og tíma hvers símtals)
  • 3 mismunandi áframsendingar (ef í samtali, eftir tiltekinn fjölda hringinga eða skilyrðislaust)
  • Möguleiki á sjálfvirkri hringingu (hringir án þess að tól sé tekið upp)
  • "DND" (Ekki trufla) hnappur með ljósi
  • "ON HOLD" (Bið) hnappur með biðtónlist
  • "MUTE" hnappur sem lokar fyrir hljóðnema, með ljósi
  • Möguleiki á allt að þremur auka hnappaborðum, hver með 36 forritanlegum hnöppum og ljósum, t.d. fyrir hraðval (t.d. fyrir símtæki í móttöku)
  • Dagsetning og klukka á skjá ásamt upplýsingum um stöðu valdra aðgerða og fjölda ósvaraðra símtala
  • Birtir tilkynningar sem t.d. stjórnendur senda frá sér, bæði tal og texta
  • Hægt að læsa lyklaborði með lykilorði
  • Innbyggð Ethernet brú (nettengi við tölvu) til að samnýta tölvutengil með tölvu starfsmanns
  • Möguleiki á "Rafmagn yfir Ethernet" (PoE) í stað þess að tengja hvert símtæki rafmagnstengil

SIP býður þessa síma þar að auki með eftirtöldum sérsniðnum eiginleikum (með IP Símkerfi SIP):

  • Sýna beint númer; hnappurinn gerir það að verkum þegar hringt er út fyrir kerfið birtist beint númer starfsmanns í stað aðalnúmers.
  • Áframsending; fljótleg leið til að senda öll innkomandi símtöl í hvaða númer sem er.
  • Símsvari; virkjar símsvara fyrir allt fyrirtæki úr hvaða símtæki sem er. Ljós kviknar á öllum símtækjum sem sýnir að símsvari er orðinn virkur.
  • Talhólf; virkjar áframsendingu i talhólf starfsmanns. Hljóðskilaboð í talhólfi má hlusta á í símanum og láta senda þau með tölvupósti.
  • Upptaka; hnappur til að hefja upptöku á símtali á meðan á því stendur.
  • Innskráning í biðröð; hnappur til að skrá sig inn í biðröð til að svara símtölum.
  • Skoða biðröð; hnappur til að skoða stöðu í biðröð (fjöldi, biðtími, o.s.frv.)

Auk þess getur SIP útfært enn fleiri möguleika, svo sem hnapp til að senda upptöku á tiltekinn stað (t.d. netfang), hnapp til að merkja símtal (t.d. fyrir gjaldfærslu), virkja ljós eða hringingu á símtæki út frá skynjurum (t.d. hurð, hita, reyk, o.s.frv.) eða annarra eiginleika sem viðskiptavinur óskar eftir því að fá útfærða.




SIP ehf  |  Skúlagata 19, 101 Reykjavík  |  Sími: 415 1500  |  Bakvaktarsími: 415 1555  |  sip@sip.is